• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Neyðarkall 2021

Neyðarkall 2021
Neyðarkallinn 2021 með forverum sínum í bakgrunn.

Árlegri neyðarkallasölu var frestað í nóvember en nú látum við slag standa! Við leggjum af stað með Neyðarkall 2020 núna 4.-7. febrúar. Vopnuð grímum, hönskum, spritti, hæfilegri fjarlægð og góða skapinu keyrum við galvösk um sveit og þorp með kallinn og hundinn hans. Kallinn kostar 2.500 kr. og hver króna skiptir gríðarlegu máli fyrir litla sveit.

Hvetjum alla til að versla við sína heimasveit þar sem ágóðinn rennur til þeirrar sveitar sem selur, en ekki í heildarsjóð Landsbjargar. Með von um góðar móttökur úr hæfilegri fjarlægð.

Hjálparsveitin Dalbjörg


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is