• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Siðareglur Slysavarnarfélagsins Landsbjargar

Reglur þessar ná til félaga í björgunarsveitum, slysavarnadeildum og unglingadeildum og starfsmanna Slysavarnafélagsins Landsbjargar, þegar þeir eru í störfum á vegum samtakanna.

• Félögum Slysavarnafélagins Landsbjargar ber að sýna góða hegðun í störfum og vanvirða á engan hátt samtökin, markmið þess eða merki.

• Félögum er skylt að gæta þagmælsku um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara. Þetta á einnig við um birtingu mynda af slysavettvangi.

• Félögum er óheimilt að beita aðra einelti og eða áreitni af neinu tagi.

• Félögum ber að hlýða stjórnendum aðgerða eða æfinga og fylgja því skipulagi sem sett hefur verið upp af stjórnendum.

• Allir félagar skulu sýna fyllstu aðgát og varkárni við stjórn farartækja og gæta þess að valda ekki slysahættu né skemmdum á verðmætum eða náttúru.

• Félagar skulu þekkja skyldur sínar, viðhalda þekkingu sinni, kynna sér nýjungar er varða starfið og varðveita hæfni sína.

• Félagar skulu í störfum sínum bera einkenni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Einkennisfatnað þann sem samtökin hafa látið útbúa ber þeim að virða.

• Félagar á útkallslistum björgunarsveita skulu eigi vera yngri en 18 ára.

• Félaga sem gerist brotlegur við reglur þessar má vísa úr starfi á vegum samtakanna tímabundið eða að fullu. Einstakar félagseiningar geta sett strangari reglur en verða að gæta þess að tryggt sé að ofangreindar reglur séu hluti þeirra.

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is