• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Vikulegur fer vel af stað

Síðustu mánudaga höfum við haft húsið opið frá kl 20:15 og kallað hittinginn "Vikulegan". 

Yfirleitt er engin sérstök dagskrá en fólki er velkomið að gera það sem því dettur í hug. Heitt er á könnunni og kex í skápnum.

Ekki höfum við þó liðið hugmyndaskort síðustu mánudaga. Mikið hefur verið um júmm og sig, akkerisuppsetningu, dobblun, línubrýr og meiri spottavinnu , bílaviðgerðir, þrif, viðhald á húsinu og fleira. 

Mæting hefur verið góð og fer batnandi. Höfum verið á bilinu 7 - 20. 

Það hefur því sannað sig að það er frábært fyrir okkur að hafa fasta vikulega hittinga og vonum við að mætingin haldist góð áfram.


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is