• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Vikulegur!

Nú ætlum við að fara af stað með nýja tegund af "hittingum". Nýji hittingurinn verður hvern mánudag í vetur kl. 20:15 og kallast því "Vikulegur". Á þessum hittingum ætlum við að gera alls konar - spjöllum, horfum á myndbönd, bindum hnúta, rifjum upp fyrstu hjálp og alls konar skemmtilegt. 

Þetta er skemmtilegt viðbót í starfið okkar, hugmynd sem kom frá Ólafi Inga, Ragnari Ágústi, Friðriki og Bjarka. Ef ykkur langar að koma einhverjum hugmyndum að um hvað er hægt að bardúsa á þessum dögum, heyrið endilega í þeim. 

Fyrsti vikulegur var síðasta mánudag, þann 18. september og var fínasta mæting, enda fullt af fólki að vinna í nýja þakinu á Dalborg. Við hlökkum til að sjá enn fleiri næst!


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is