• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Útkall á Glerárdal

Útkall á Glerárdal
Frá æfingarferð í Laugarfell 2016

Dalbjargarfélagar fengu boð um útkall á Glerárdal þann 28. febrúar síðastliðinn, um kl. 22 um kvöldið. Um var að ræða tvo erlenda göngumenn sem voru á leið í skálann Lamba á Glerárdal. Þeir óskuðu eftir aðstoð þar sem þeir treystu sér ekki lengra, en voru vel búnir. Tveir félagar fóru til aðstoðar á sleðum sveitarinnar auk þess sem einn félagi var í svæðisstjórn á meðan á útkallinu stóð. 

Mennirnir fundust heilir á húfi um kl. 00:30 um nóttina. Vel gekk að koma mönnunum til byggða og var aðgerðinni lokið um klukkustund síðar.


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is