Flýtilyklar
Þrettándasala Dalbjargar
05.01.2019
-
05.01.2019
Gleðilegt nýtt ár kæru landsmenn og þökk fyrir veittan stuðning á síðastliðnu ári.
Eins og hefð hefur verið fyrir síðustu ár munum við Dalbjargar fólk vera með flugeldasölu fyrir þrettándann.
Laugardaginn næsta, þ.e. 5. janúar á milli kl. 19 og 21 verðum við í Dalborg og tökum á móti gestum og gangandi sem vilja klára jólin með stæl og sprengja upp á þrettándanum.
Við verðum með heitt á könnunni og posi verður á staðnum.
comments powered by Disqus