• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Tækjamót og Hálendisvakt 2015

Tækjamót Slysavarnafélagsins Landsbjargar verður haldið í Trékyllisvík á Ströndum dagana 20.-22. mars 2015. Þangað munu hópast félagar úr fjölmörgum björgunarsveitum á landinu til að sýna sig og sjá aðra. Þetta er mjög skemmtilegur viðburður og við hvetjum ykkur til að hafa dagsetninguna í huga, en þetta verður rætt frekar á næsta almenna fundi þann 1. febrúar.

Við minnum svo á að skráningar eru að hefjast í Hálendisvaktina 2015. Svæðin eru þau sömu og fyrr og okkar vakt verður 12.-19. júlí. Þeir sem hafa áhuga skulu setja sig í samband við stjórn sem fyrst.


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is