Flýtilyklar
Sumardagurinn fyrsti og Fjölskyldudagur
17.04.2018
Fjölskyldudagur Dalbjargar verður haldinn þriðjudaginn 1. maí á Víkurskarði. Þar ætlum við að hittast eins og oft áður um kl. 10, leika okkur í snjónum fram eftir degi og grilla pylsur í boði Dalbjargar.
Sumardaginn fyrsta verður aðalfundurinn okkar haldinn kl. 20:30 í Dalborg. Að deginum ætla nokkrir vaskir félagar að fara með tækin okkar á sumarhátíð Funa á Melgerðismelum eins og við höfum gert síðustu ár. Við hvetjum auðvitað alla til að mæta á hátíðina.
comments powered by Disqus