• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Styrkur til Dalbjargar

Styrkur til Dalbjargar
Fyrsti styrkurinn í baukinn.

Nú á dögunum bauðst hjálparsveitinni styrkur frá veitingastaðnum Akureyri Fish and Chips við Skipagötu. Á staðnum verður box undir þjórfé með myndum úr starfi Hjálparsveitarinnar Dalbjargar og mun allt sem kemur í boxið renna beint til styrktar sveitinni. Hann Friðrik okkar smíðaði þennan flotta bauk og naut aðstoðar Axels í Pedromyndum við að setja myndirnar á. 

Á meðfylgjandi mynd sést hann Andri (á flandri) setja fyrstu 200 krónurnar í baukinn. 

Við þökkum eigendum staðarins kærlega fyrir framtakið og Friðrik og Axel fyrir aðstoðina.

Við hvetjum auðvitað alla til þess að líta við á Akureyri Fish and Chips, bragða á þeirra góðu réttum og láta eitthvað smávegis af hendi rakna í baukinn góða!


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is