• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Reykskynjarar og Neyðarkallinn

Hin árlega reykskynjarayfirferð Hjálparsveitarinnar Dalbjargar verður farin helgina 2.-4. nóvember. Þetta verður með svipuðu sniði og undanfarin ár, en félagar Dalbjargar munu fara í öll hús í sveitinni og selja rafhlöður fyrir reykskynjara á kostnaðarverði. Auk þess verðum við með reykskynjara til sölu og veitum ráðgjöf um eldvarnir.

Við viljum minna á að ráðlagt er að skipta árlega um rafhlöður í reykskynjurum, sem og að skipta út gömlum búnaði, en reykskynjarar og önnur eldvarnatæki hafa einungis ákveðinn líftíma. Nú þegar jólin nálgast með jólaljósum og kertum er góður tími til að taka til hendinni í þessum málum.

Samhliða yfirferðinni munum við hafa Neyðarkallinn til sölu. Sala á honum er góð fjáröflun fyrir hjálparsveitina og því vonumst við eftir góðum móttökum eins og undanfarin ár.

Þeim sem ekki verða heima um helgina, en vilja samt nýta sér þessa þjónustu og kaupa rafhlöður, reykskynjara eða Neyðarkallinn, bendum við á að hafa samband við Ólaf Inga í síma 8619414.

 

 

Skráning á vaktir:

Fimmtudagur

Austan ár 18 - 22: Valdemar og Aðalsteinn

Vestan ár 18 - 22: Jófríður og Friðrik

Hrafnagilshverfi 18 - 22: Jonni og ...

Föstudagur

Austan ár 18 - 22: Ólína og Freydís

Vestan ár 18 - 22: Ísak og Tristan

Laugardagur

Austan 10 - 14: Tristan og Ísak

Vestan 10 - 14: Davíð og Þór

Austan 14 - 18: Kristján H og Hákon

Vestan 14 - 18: Bjarney og Íris

Hrafnagilshverfi 10 - 14: Gulla og Þórhildur

Sunnudagur (Farið þangað sem enginn var heima, mögulega verðum við búin á laugardag)

Jóhann, Skírnir, Eiður, Víðir...


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is