• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Páskagangan 2016

Páskagangan 2016
Páskagangan 2015

Páskaganga og vöfflukaffi Dalbjargar

Eins og undanfarin ár verður páskaganga Dalbjargar á föstudaginn langa, þann 25. mars nk. Gangan hefst við húsið okkar Dalborg í Hrafnagilshverfinu kl. 10 og gengið verður gömlu bakkana að Munkaþverá. Hægt verður að velja um nokkrar vegalengdir svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, auk þess sem drykkjarstöðvar verða á leiðinni.

Þátttökugjald í göngunni eru 1500 kr. fyrir eldri en 12 ára og 500 kr. fyrir 6-12 ára. Innifalið í því eru vöfflur og kaffi í nýja húsinu okkar að lokinni göngu. Einnig er hægt að leggja frjáls framlög inn á reikninginn okkar:

Reikningsnúmer: 302-26-12484 og kennitala: 530585-0349

Við hvetjum auðvitað sem flesta til að mæta, ganga, skokka eða hjóla og styðja við bakið á Dalbjargarfélögum. Eins og í fyrra ætlar unglingadeildin og umsjónarmenn hennar að sjá um gönguna. Þetta er því kjörið tækifæri til að hitta efnilegu krakkana í unglingadeildinni og styrkja þau í sínu starfi.

 

Gleðilega páska!

 

Hjálparsveitin Dalbjörg 


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is