• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Páskaganga

Páskaganga

Föstudaginn langa, þann 14. apríl 2017 ætlar Hjálparsvetin Dalbjörg að bjóða gestum að koma í heimsókn. Eins og undanfarin ár efnum við til göngu frá húsi okkar Dalborg. Gengið verður gömlu bakkana að Munkaþverá. Ýmsar vegalengdir eru í boði, frá 2.5 km til 12 km., svo að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Að göngu lokinni bjóðum við uppá stórglæsilegt vöfflukaffi. Það verður opið hús, þar sem gestir geta skoðað og fræðst um starf sveitarinnar. Fyrir yngri kynslóðina verðum við með páskaeggjaleit og kassaklifur. Gangan hefst stundvíslega kl.10 og páskaeggjaleitin verður eftir gönguna. Þátttökugjald í gönguna eru 1500 kr. Fyrir 13 ára og eldri og 500 kr. Fyrir 6-12 ára og innifalið í því er vöfflur og drykkir að lokinni göngu. Einnig er hægt að leggja frjáls framlög inn á reikning okkar, 0302-26-012482 og kt. 530585-0349. Við hvetjum auðvitað sem flesta til að mæta, ganga, skokka eða hjóla og styðja við bakið á Dalbjargarfélögum. Eins og síðustu ár er það unglingadeildin og umsjónarmenn hennar sem sjá um gönguna. Þetta er því kjörið tækifæri til að hitta efnilegu krakkana í unglingadeildinni og styrkja þau í sínu starfi.

Gleðilega páska!

Hjálparsveitn Dalbjörg

www.dalbjorg.is


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is