• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Mission: Þakið á

Mission helgarinnar er að koma nýju þaki á Dalborg!

Við ætlum að byrja kl. 8 á föstudagsmorguninn, þann 15. september og verðum að fá með okkur allar lausar hendur! Það skiptir engu máli hvort þið kunnið að smíða eða ekki - það geta allir hjálpað til, verið handlangarar, séð um matinn og margt fleira. 

Við verðum með vana smiði með okkur á föstudag og laugardag og vinnum auðvitað bara eins mikið og lengi og hægt er til að komast sem lengst með verkið! 

Þetta er auðvitað mega skemmtileg vinna í góðum félagsskap, matur í boði, góð veðurspá og allt æðislegt. 

Hlökkum til að sjá ykkur!


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is