• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Leit á höfuðborgarsvæðinu

Leit á höfuðborgarsvæðinu
Þorgils ásamt leitarhundi.

Um hádegi þann 20. janúar bárust Hjálparsveitinni Dalbjörg, ásamt öðrum björgunarsveitum á landinu, boð um leit á höfuðborgarsvæðinu að Birnu Brjánsdóttur, sem hefur verið saknað síðastliðna viku. 

Þrír félagar Dalbjargar héldu af stað suður til að taka þátt í leitinni kl. 19:00 á föstudagskvöldi ásamt félaga frá Björg á Eyrarbakka og þremur félögum frá Tý á Svalbarðseyri. Með í för voru einnig þrír leitarhundar. Þá fór einn svæðisstjórnarmaður frá Dalbjörg einnig suður til aðstoðar ásamt öðrum úr svæðisstjórn á svæði 11.

Leitað var allan laugardaginn og var leit haldið áfram á sunnudag. Birna fannst látin við Selvogsvita um hádegisbil á sunnudeginum.

 


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is