• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Landsþing og Björgunarleikar 2015

Landsþing og Björgunarleikar 2015
Björgunarleikaliðið 2013

Landsþing og Björgunarleikar S.L. verða haldin á Ísafirði 29.-30. maí. Laugardagskvöldið 30. maí verður árshátíð félagsins haldin með dansleik fram á nótt. 

Við tökum auðvitað þátt og stefnum að því að fjölmenna. Ef einhverjir hafa áhuga á því að sitja þing má endilega hafa samband við stjórn og láta vita af því. Einnig hvetjum við þá sem hafa áhuga á Björgunarleikunum til að safna saman í lið og taka þátt!

Nú er farið að huga að því að bóka gistingu á Ísafirði, svo þeir sem hafa áhuga á því að fara með skulu láta vita með athugasemd við þessa frétt fyrir næsta sunnudag, 8. mars. Stjórn mun síðan taka saman fjöldann og athuga með gistimöguleika. Ef frekari upplýsingar vantar má hafa samband við stjórn: dalbjorg@dalbjorg.is. 


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is