• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Handverkshátíðin 2017

Nú er undirbúningur fyrir Handverkshátíðina 2017 í fullum gangi. Búið er að teppaleggja, setja upp sýningarkerfi og næst er að setja upp tjöld og fleira og þökkum við öllum fyrir sem hafa lagt hönd á plóginn - en það er nóg eftir! Eins og alltaf er þetta bara fjör og skemmtileg vinna með öðrum félagasamtökum í sveitinni. Við minnum á að þessi hátíð er okkar helsta fjáröflun yfir árið og því er um að gera að allir sem geti taki sér tíma og aðstoði við það sem þarf að gera til að allt gangi upp.

Næsta skref er að setja upp tjöldin, en sú vinna fer fram dagana 8. og 9. ágúst nk., þ.e. þriðjudag og miðvikudag eftir verslunarmannahelgi. Við þurfum allar lausar hendur í það eins og venjulega, þá er auðvelt að drífa þetta af!

Síðan hefst hátíðin sjálf fimmtudaginn 10. ágúst og stendur hún til sunnudagsins 13. ágúst. Opnunartímar eru frá kl. 12-19 fimmtudag til laugardags og 12-18 á sunnudegi. Við þurfum fólk í gæslu á hátíðinni sjálfri og síðan þarf að taka herlegheitin niður þegar öllu er lokið.

Endilega skráið ykkur í vinnu og á vaktir hér í athugasemdum eða hjá Jóhanni í síma 8474041.

Þriðjudagur 8. ágúst 

Uppsetning tjalda o.fl. ca. kl. 17. Vantar allan mannskap sem hægt er að fá!

 

Miðvikudagur 9. ágúst

Uppsetning tjalda o.fl. ca. kl. 8-17 (eða eftir þörfum). Vantar allan mannskap sem hægt er að fá!

 

Fimmtudagur 10. ágúst

Gæsla á sýningu kl. 10-19.

Kl. 12-16: Hreiðar, Davíð

Kl. 16-19: Ólína, Hreiðar, Gulla

 

Föstudagur 11. ágúst

Gæsla á sýningu kl. 10-19.

Kl. 12-16: Íris, Ingvi, Davíð

Kl. 16-19: Íris, Þórhildur, Gulla

 

Föstudagskvöld 11. ágúst

Grill og kvöldvaka kl. 18-24 (hér þarf margar hendur)

 Eva, Jóhann, Gulla, Eiður, ...

 

Laugardagur 12. ágúst

Gæsla á sýningu kl. 10-19.

Kl. 12-16: Bjarney, Freydís, Palli, Kristinn

Kl. 16-19: Bjarney, Þór, Ólafur Ingi, Kristinn

 

Sunnudagur 13. ágúst

Gæsla á sýningu kl. 10-19.

Kl. 12-16: Þór, Ólafur Ingi, Bjarki

Kl. 16-19: Þór, Ólína, Bjarki

 

Svo þurfum við allar lausar hendur til að taka sýninguna niður!

Tekið niður eftir hátíð sunnudaginn 13. ágúst, mæting kl. 17.

Kl. 17: Ólína, ...

 


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is