• Hjálparsveitin Dalbjörg - 2011 - undirsíður

Aðstoðarbeiðni

Aðstoðarbeiðni
Bjarki Jóhannsson dregur spilið út.

Laugardaginn 27. október hafði rjúpnaskytta samband við sveitina og bað um aðstoð við að losa bíl sinn. Bíllinn var í sjálfheldu í hliðarhalla. Fjórir félagar fóru til aðstoðar á einum bíl sveitarinnar. Verkefnið var leyst fljótt og veður gott.

 

Þá er rétt að segja í leiðinni frá því að þann 16. september fékk sveitin útkall vegna fjórhjólaslys við Kiðagil. Tíu félagar mættu í hús og biðu frekari fyrirmæla en ekki reyndist þörf á okkar mannsskap. 


comments powered by Disqus

Svæði

Hjálparsveitin Dalbjörg • Dalborg, Hrafnagilshverfi • 605 Akureyri • 8650129 • dalbjorg@dalbjorg.is