Vetrarstarfið
Hvort sem okkur líkar betur eða verr, þá er langt liðið á sumarið. En góðu fréttirnar eru þær að það styttist í fyrsta fund haustsins.
Fyrsti fundurinn okkar verður sunnudaginn 7. september. Þar verður farið yfir Handverkshátíðina, mögulega haustferð, tekið á móti nýliðum, farið yfir útköll og aðstoðarbeiðnir, verklag við útköll, námskeið og margt fleira skemmtilegt.
Í sumar var líka keyptur nýr klifur- og sigbúnaður sem verður hægt að skoða og fræðast betur um ásamt nýjum og flottum skyndihjálparbúnaði sem einhverjir eiga kannski eftir að skoða.
Fjölmörg námskeið eru komin á dagskrá Björgunarskólans sem þið skuluð endilega kynna ykkur. Þar getið þið skráð ykkur sjálf á námskeið. Við erum búin að taka saman þau námskeið sem eru hér nálægt okkur ásamt fjarnámskeiðum og fleiru, sem þið getið skoðað hér . Endilega farið yfir þau námskeið sem er miðað við að þurfi að taka til að komast á útkallslista, þær reglur má sjá hér .
Svo er aldrei að vita nema við bjóðum upp á köku.. þetta verður ofurfundur.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest, sérstaklega nýja fólkið!
Update 17. september: Fyrstu námskeiðin hjá okkur um helgina, Leitartækni og Straumvatnsbjörgun 1. Skráning á vef Björgunarskólans.
Kveðja, stjórnin.








