Styrkja Hjálparsveitina Dalbjörg


Hér má sjá allar upplýsingar um þær leiðir sem þú getur notað til að styðja við bakið á okkur í Hjálparsveitinni Dalbjörg eða Unglingadeildinni Böngsum, hvort sem það er með því að ganga í sveitina, styrkja okkur með kaupum á búnaði eða með beinum peningastyrkjum. Ef þú ert með aðrar hugmyndir að þinni aðkomu getur þú haft samband við okkur.


Að ganga í sveitina


Til þess að ganga í Hjálparsveitina Dalbjörg er best að mæta á fund, en þeir eru haldnir í húsnæðinu okkar, Dalborg í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit, fyrsta sunnudag hvers mánaðar. Ef þú vilt láta vita af þér áður eða vantar upplýsingar, er best að senda fyrirspurn með því að smella á hnappinn hér til hægri, eða senda tölvupóst á dalbjorg@dalbjorg.is. 


Að styrkja sveitina

Hjálparsveitina Dalbjörg, Unglingadeildina Bangsa og Slysavarnafélagið Landsbjörg má styrkja með ýmsum hætti, hvort sem er með beinum styrkjum eða framlagi af ýmsu tagi. 


Beint framlag

Beint framlag til Hjálparsveitarinnar Dalbjargar eða Unglingadeildarinnar Bangsa má inna af hendi á eftirfarandi reikning: 


0302-26-012482 kt: 530585-0349


Gott er að setja skýringu með greiðslunni. 


Aðrir styrkir

Með því að gerast Bakvörður styrkirðu Slysavarnafélagið Landsbjörg um ákveðna upphæð á mánuði.

Senda má Heillaskeyti Slysavarnafélagsins Landsbjargar og styrkja starfsemi félagsins eða einstakra sveita. Þá er unnt að senda minningarkort, gefa erfðagjöf  og kaupa Landsbjargargjafir sem fara upp í kaup á búnaði og tækjum.


Auglýsingar

Langi þig eða fyrirtæki þitt að auglýsa í Dalbjargarblaðinu sem kemur út um jól ár hvert, má hafa samband við okkur á dalbjorg@dalbjorg.is. Blaðinu er dreift í öll hús í Eyjafjarðarsveit auk þess sem það er sent til allra auglýsenda og einnig til allra björgunarsveita á landinu.