Vinnukvöld hjá sleðamönnum

3. mars 2009

Í gærkvöldi var vinnukvöld hjá sleðaflokki. Fengum við inni hjá Halla Gulla og Bubba í Iðnaðarbilinu þeirra við Goðanes. Þar mættu Pétur, Palli, Smári, Bubbi K, Bubbi T, Viðar og Erna og sinntu viðhaldi á sleðunum.

Skipt var um olíu á drifunum, kúplingar hreinsaðar, skipt um kerti, pústventlar teknir í sundur og þrifnir, búkkarnir smurðir, sleðarnir þrifnir og bónaðir og síðan smíðaði Bubbi K nýja festingu fyrir VHF sem brotnar ekki.

   Síðan erum við búin að panta nýjan sjópoka á annan sleðann, kaupa 230v hleðslutæki fyrir VHF, varagrímu inn í hjálmana, vara rafhlöður (AAA) fyrir snjóflóðaýla og ennisljós ( í búnaðartösku).

Umsjónarmenn vilja brýna á því að þeir sé látnir vita um allt sem varðar sleðana. Hvort að eitthvað tjónast, eitthvað óeðlilegt við sleðana/búnað, skipt er um reim, kerti osfv. (reim og kerti í einn sleða kostar 27.000 kr.)  UMGENGNISREGLUR
    Einnig að það sé bara teknar út vörur á kortið í sleðunum sem varðar þá. Hiace hefur sitt eigið kort.
  
    Varðandi búnaðinn þá eru hjálmarnir í búnaðartösku ekki til almennra nota, þeir eru ætlaðir útkallsökumönnum í útköllum og í lengri ferðum.
    Það verða allir að leggjast á eitt með að halda þessum tækjum í topp ástandi svo að þeir séu alltaf klárir í útkall.

Sleðaflokkurinn þarf síðan að hittast aftur fljótlega og skipuleggja ferðir sem við ætlum í núna í vetur. Ráðgert er að fara allavega tvær stórar ferðir og hafa eina útkallsæfingu fyrir beltatæki. Síðan verða menn að vera duglegir að fara í styttri ferðir til að halda sér í æfingu og læra á landið.
   Næsta skipulagða ferð er Dalbjargarferðin og þá fara sleðarnir með og menn geta rætt við umsjónarmenn um að fara í þá ferð.

Sleðarnir eru í mjög góðu ástandi, hreinir og klárir í slaginn. Vilja umsjónarmenn þakka ökumönnum þá virðingu sem þeir hafa fyrir þessum tækjum og vonum við að þessi vetur verði jafn farsæll og síðustu 5 vetur.


Einnig mætti formaðurinn okkar hann Eiður ásamt Sindra og Eysteinn leit í kaffi.

 

Kveðja frá umsjónarmönnum, Pétur og Smári

Eftir Stefna Hugbúnaðarhús 2. janúar 2026
The body content of your post goes here. To edit this text, click on it and delete this default text and start typing your own or paste your own from a different source.
Eftir Sunna Axelsdóttir 6. júlí 2025
Góðan daginn, þetta er flugstjórinn sem talar.
24. maí 2024
Aðalfundur var haldinn að Ytra-Gili þann 20. maí sl. og ný stjórn kosin.
26. apríl 2024
Aðalfundur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar 2024 verður haldinn þann 20. maí kl. 20:00.
20. september 2023
Fyrsti hittingur unglingadeildarinnar var haldinn þriðjudagskvöldið 19. september þar sem var farið í kassaklifur og farið stuttlega yfir flutning í börum.
5. september 2023
Nú er komið að fyrsta almenna fundi vetrarins sem verður haldinn sunnudaginn 10. september nk. í Dalborg kl. 20:30.
14. maí 2023
Björgunarleikar og Landsþing SL var haldið á Akureyri um helgina og landaði lið Dalbjargar í Björgunarleikunum, "Made in Sveitin", 3. sæti af 16 liðum!
5. maí 2023
Aðalfundur Dalbjargar var haldin sunnudagskvöldið 30. apríl á Ytra-Gili hjá þeim eðalhjónum Sigurgeir og Bylgju.Á fundinum var farið yfir venjuleg aðalfundarstörf, s.s. skýrslu stjórnar, skoðun reikninga, framboð til stjórnar, fullgilda félaga frá síðasta aðalfundi og nýliða ásamt fleiru. Sigurgeir Hreinsson var fundarstjóri og Bjarney Guðbjörnsdóttir fundarritari.Kosið var um 3 aðila í stjórn og komu 3 framboð þannig það má segja að þeir aðilar hafi verið sjálfkjörnir.Eftirfarandi aðilar gáfu kost á sér til stjórnarsetu:Elmar SigurgeirssonHreiðar Fannar VíðissonVíðir Sveinn ÁgústssonEinnig var kosið til gjaldkera og gaf Jóhannes Jakobsson kost á sér, en hann hefur sinnt gjaldkerastarfinu í nokkurn tíma. Ekki bárust fleiri framboð svo Jóhannes var kosinn gjaldkeri Dalbjargar.Í vara stjórn eru þá eftirfarandi aðilar:Bjarki Búi ÓmarssonGyða Sjöfn Njálsdóttir
2. maí 2022
Aðalfundur Dalbjargar var haldin sunnudagskvöldið 1. maí kl. 20 á Brúnir Horse.Á fundinum var farið yfir venjuleg aðalfundarstörf, s.s. skýrslu stjórnar, skoðun reikninga, framboð til stjórnar, fullgilda félaga frá síðasta aðalfundi og nýliða ásamt fleiru. Ragnar Jónsson var fundarstjóri og Bjarney Guðbjörnsdóttir fundarritari.Kosið var um 4 aðila í stjórn og komu 4 framboð þannig það má segja að þeir aðilar hafi verið sjálfkjörnir.Eftirfarandi aðilar gáfu kost á sér stjórnarsetu:Kristján Hermann TryggvasonVíðir Sveinn ÁgústssonHreiðar Fannar VíðissonElmar Sigurgeirsson Og Kristján bauð sig fram til formanns, en hann hefur setið áður sem formaður óskum við honum til hamingju með þann titil.Gyða Sjöfn Njálsdóttir fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér aftur til formennsku, þökkum við henni fyrir vel unnin störf síðastliðin 2 ár. En hún segir þó ekki skilið við starfið og gaf kost á sér til varamanns.Í vara stjórn eru þá eftirfarandi aðilar:Gyða Sjöfn NjálsdóttirBjarki Búi Ómarsson
14. apríl 2022
Föstudaginn langa, þann 15. apríl 2022 ætlar Hjálparsveitin Dalbjörg að bjóða gestum að koma í heimsókn. Eins og undanfarin ár efnum við til göngu frá húsi okkar Dalborg. Gengið verður eftir útivistastígnum fína. Ýmsar vegalengdir eru í boði, frá 2,5 km til 12 km., svo að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Að göngu lokinni bjóðum við uppá stórglæsilegt vöfflukaffi.Það verður opið hús, þar sem gestir geta skoðað og fræðst um starf sveitarinnar. Gangan hefst stundvíslega kl. 10:00. Þátttökugjald í gönguna eru 1.500 kr. fyrir 13 ára og eldri og 500 kr. fyrir 6-12 ára og innifalið í því er vöfflur og drykkir að lokinni göngu. Einnig er hægt að leggja frjáls framlög inn á reikning okkar, 0302-26-012482 og kt. 530585-0349.Við hvetjum auðvitað sem flesta til að mæta, ganga, skokka eða hjóla og styðja við bakið á Dalbjargarfélögum. Hlökkum til að sjá ykkur!
Fleiri færslur