Útköll og annir síðustu daga

17. september 2012

  Enginn hefur farið varhluta af því sem gengið hefur á hér allt í kringum okkur síðustu daga. Björgunarsveitir og bændur hafa leitað eftir fé víða og höfum við í Dalbjörg tekið þátt í því á fullu.
   
   Um 20 manns hafa tekið þátt í þessum útköllum frá okkur og skilað yfir 480 vinnustundum. Tækin okkar hafa verið keyrð yfir 3200 km þessa daga. Auk okkar tækja höfum við fengið að láni breyttan jeppa, tvo snjósleða, kerrur og síðan fengum við mikla hjálp frá Hjalta á Akri en hann flutti snjóbílinn fyrir okkur.

  Mannskapurinn sem fékk inni á Heiðarbæ kunni staðarhöldurum miklar þakkir fyrir frábærar móttökur. Eins var frábært að sjá yngstu björgunarsveitarfélagana og fá þeir mikið hrós fyrir sinn þátt í þessum verkefnum og þá sérstaklega Hreiðar "Víddason" en hann tók þátt í þeim öllum.
 
Þriðjudagur
   Eftir að veðrið slotaði á þriðjudagsmorgun var óskað eftir mannskap og tækjum upp í Mývatssveit þar sem bændur vissu af mörgum kindum undir snjó. Sendum við þá strax 5 manns á Dalbjörg 2 og tvo sleðamenn upp í sveit og unnu þeir fram í myrkur við að grafa upp fé.

Miðvikudagur
   Á miðvikudagsmorgun sendum við öll okkar tæki og meira til upp á Þeistareykjasvæði. Það var stór floti sem lagði af stað kl 7 frá Leirunesti, Þrír jeppar með þrjá sleða í eftir dragi, vörubíll með snjóbílinn og mannskapsbílinn okkar. Fram í myrkur unnu þrír sleðamenn, sex manns á björgunarsveitarjeppunum tveimur og tveir menn á snjóbílnum við að grafa, finna og ferja kindur á svæðinu.

Fimmtudagur
   Áfram hélt leitin á fimmtudagsmorgun og aftur fór vaskur hópur sex manna á svæðið til móts við þrjá okkar manna sem gist höfðu í góðu yfirlæti á Heiðarbæ um nóttina. Haldið var áfram frá deginum áður á jeppum og sleðum en snjóbíllin sem varð fyrir smá tjóni var komið fyrir á fletinu sínu.

Föstudagur
   Á föstudeginum fengu björgunarsveitarmenn á svæði 11 pásu enda margir búnir að vera þrjá daga við erfiða leit. Flestir frá okkur hafa þá loks haft tækifæri á að sinna búpeningi og öðru heima fyrir sem sat á hakanum og en aðrir nýttu lausann tíma í að hlúa að búnaði og tækjum sveitarinnar.

Laugardagur
   Á laugardagsmorguninn var síðan aftur óskað eftir liðsinni okkar og nú í Bárðardal við Bjarnarstaði. sex manns á þremur sleðum og Dalbjörg 1 fóru í bítið og unnu fram í myrkur við leit.

Eins og sést þá hefur mikið mætt á mannskap og tækjum sveitarinnar. 
   Nú tekur við að koma öllum búnaði á sinn stað og gera við þau tæki sem hafa laskast. Við vitum ekki hvenær næsta kall kemur þannig að ef menn vita um einhvern búnað sveitarinnar sem er ekki á sínum stað eða í lagi, látið stjórn vita af því. 


Flotinn á Þeistareykjum

Bubbarnir að ferja kindur við Baldursheim

Lagt af stað í bítið á miðvikudagsmorgni.

Verið að reka fé til réttar frá Þeistareykjum.

Eftir Stefna Hugbúnaðarhús 2. janúar 2026
The body content of your post goes here. To edit this text, click on it and delete this default text and start typing your own or paste your own from a different source.
Eftir Sunna Axelsdóttir 6. júlí 2025
Góðan daginn, þetta er flugstjórinn sem talar.
24. maí 2024
Aðalfundur var haldinn að Ytra-Gili þann 20. maí sl. og ný stjórn kosin.
26. apríl 2024
Aðalfundur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar 2024 verður haldinn þann 20. maí kl. 20:00.
20. september 2023
Fyrsti hittingur unglingadeildarinnar var haldinn þriðjudagskvöldið 19. september þar sem var farið í kassaklifur og farið stuttlega yfir flutning í börum.
5. september 2023
Nú er komið að fyrsta almenna fundi vetrarins sem verður haldinn sunnudaginn 10. september nk. í Dalborg kl. 20:30.
14. maí 2023
Björgunarleikar og Landsþing SL var haldið á Akureyri um helgina og landaði lið Dalbjargar í Björgunarleikunum, "Made in Sveitin", 3. sæti af 16 liðum!
5. maí 2023
Aðalfundur Dalbjargar var haldin sunnudagskvöldið 30. apríl á Ytra-Gili hjá þeim eðalhjónum Sigurgeir og Bylgju.Á fundinum var farið yfir venjuleg aðalfundarstörf, s.s. skýrslu stjórnar, skoðun reikninga, framboð til stjórnar, fullgilda félaga frá síðasta aðalfundi og nýliða ásamt fleiru. Sigurgeir Hreinsson var fundarstjóri og Bjarney Guðbjörnsdóttir fundarritari.Kosið var um 3 aðila í stjórn og komu 3 framboð þannig það má segja að þeir aðilar hafi verið sjálfkjörnir.Eftirfarandi aðilar gáfu kost á sér til stjórnarsetu:Elmar SigurgeirssonHreiðar Fannar VíðissonVíðir Sveinn ÁgústssonEinnig var kosið til gjaldkera og gaf Jóhannes Jakobsson kost á sér, en hann hefur sinnt gjaldkerastarfinu í nokkurn tíma. Ekki bárust fleiri framboð svo Jóhannes var kosinn gjaldkeri Dalbjargar.Í vara stjórn eru þá eftirfarandi aðilar:Bjarki Búi ÓmarssonGyða Sjöfn Njálsdóttir
2. maí 2022
Aðalfundur Dalbjargar var haldin sunnudagskvöldið 1. maí kl. 20 á Brúnir Horse.Á fundinum var farið yfir venjuleg aðalfundarstörf, s.s. skýrslu stjórnar, skoðun reikninga, framboð til stjórnar, fullgilda félaga frá síðasta aðalfundi og nýliða ásamt fleiru. Ragnar Jónsson var fundarstjóri og Bjarney Guðbjörnsdóttir fundarritari.Kosið var um 4 aðila í stjórn og komu 4 framboð þannig það má segja að þeir aðilar hafi verið sjálfkjörnir.Eftirfarandi aðilar gáfu kost á sér stjórnarsetu:Kristján Hermann TryggvasonVíðir Sveinn ÁgústssonHreiðar Fannar VíðissonElmar Sigurgeirsson Og Kristján bauð sig fram til formanns, en hann hefur setið áður sem formaður óskum við honum til hamingju með þann titil.Gyða Sjöfn Njálsdóttir fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér aftur til formennsku, þökkum við henni fyrir vel unnin störf síðastliðin 2 ár. En hún segir þó ekki skilið við starfið og gaf kost á sér til varamanns.Í vara stjórn eru þá eftirfarandi aðilar:Gyða Sjöfn NjálsdóttirBjarki Búi Ómarsson
14. apríl 2022
Föstudaginn langa, þann 15. apríl 2022 ætlar Hjálparsveitin Dalbjörg að bjóða gestum að koma í heimsókn. Eins og undanfarin ár efnum við til göngu frá húsi okkar Dalborg. Gengið verður eftir útivistastígnum fína. Ýmsar vegalengdir eru í boði, frá 2,5 km til 12 km., svo að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Að göngu lokinni bjóðum við uppá stórglæsilegt vöfflukaffi.Það verður opið hús, þar sem gestir geta skoðað og fræðst um starf sveitarinnar. Gangan hefst stundvíslega kl. 10:00. Þátttökugjald í gönguna eru 1.500 kr. fyrir 13 ára og eldri og 500 kr. fyrir 6-12 ára og innifalið í því er vöfflur og drykkir að lokinni göngu. Einnig er hægt að leggja frjáls framlög inn á reikning okkar, 0302-26-012482 og kt. 530585-0349.Við hvetjum auðvitað sem flesta til að mæta, ganga, skokka eða hjóla og styðja við bakið á Dalbjargarfélögum. Hlökkum til að sjá ykkur!
Fleiri færslur