Unglingadeildin að hefja störf
Þá er starf unglingadeildarinnar Bangsa að hefjast en er að með breyttu sniði frá því sem var. Nú er unglingadeildin aðeins keyrð
á vorönn og fram á sumar og er hún ætluð krökkum frá tíundabekk til 18 ára aldurs . Er hugsunin með
því að hafa starfið markvissara og skilar sér betur til þeirra sem taka þátt.
Guðlaug Sigríður verður yfirumsjónarmaður og Helga umsjónarmaður en margir aðrir munu hjálpa til. Hugsunin er að þær tvær
muni sjá um að halda utan um dagskrána sem er komin og sjá til þess að fá mannskap til að hjálpa til við kennslu eða verkefni. Við hin
hinsvegar tökum vel í það þegar þær leita til okkar og er hugmyndin að aðeins verði leitað einu sinni til hvers og eins með að
hjálpa til á hverri önn.
Starf deildarinnar verður kynnt í Hrafnagilsskóla á föstudag og þá geta krakkar skráð sig í hana sem ekki voru skráð í
hana fyrir. Formleg dagskrá heldur síðan áfram í næstu viku með kassaklifri í íþróttahúsinu.
Janúar
n 14. Kynning á björgunarsveit ( í skólanum) Umsjónarmaður+stjórnarmaður .
n 18. Kassaklifur (seinnipartur í skólanum kl: 17-19) Smári+Halli+Snorri+umsjónarmaður
n 25. Kynnig á búnaði Dalbjargar, bílaflokk, sleðaflokk, hjálparliði og síðan kynning á klæðnaði og einstaklingsbúnaði (Kvöld, Bangsabúð). Bubbi+Palli+Ingi+umsjónarmaður
Febrúar
n 8. Skyndihjálparnámskeið (kvöld, Félagsborg) Umsjónarmenn+Sunna
n 22. Gönguferð Hulda+umsjónarmenn
Mars
n 8. GPS og rötun námskeið (kvöld, Félagsborg) Pétur+umsjónarmaður
n 19. Óvissunótt (ratleikur með áttavita, skyndihjálparverkefni ofl.)(föstudagskvöld, Bangsabúð) Umsjónarmenn
Apríl
n 5. Klifurveggur hjá Súlum (kvöld) Umsjónarmenn+Jóhann
n Að lokum þegar að hentar jeppaferð fyrir þá samviskusömu. Pétur, Víðir, Hlynur, Eisi, Raggi, Ingi, Viðar, Jóhann, Eysteinn, Elmar, Bubbi 3, Krisján+umsjónarmenn
Sumar
n Gönguferð í Sölvadal Umsjónarmenn+Víðir
n Tjaldútilega í Leyningshólum Umsjónarmenn+Binni.








