Hausttilboð fyrir björgunarsveitir

8. september 2014

Hér eru nokkur tilboð og fleira frá ýmsum útivistarverslunum sem við fengum send frá SL. Ef þið eruð ekki á póstlistanum, sendið þá línu á dalbjorg@dalbjorg.is og látið vita hvaða netfang skal skrá á listann.

Tilboðin eru sett hér inn í tímaröð.

Nýliðavika í Intersport

Dagana 8.-12. september verður 25% afsláttur af öllum útivistarvörum. Nánari upplýsingar veitir Laufey, laufey@intersport.is. 

Afsláttardagar hjá Íslensku ölpunum

Dagana 15. september til 31. október verða Íslensku alparnir með tilboð til björgunarsveita. Veittur verður 25% afsláttur þessa daga. 

Kynningarkvöld og safnpantanir Fjallakofans 2014

Kynningarkvöld 23. september og 6. október í Kringlunni 7 kl. 18:30. Félagar SL fá 25-50% afslátt af fjallafatnaði og fjallabúnaði (almennur afsláttur fyrir björgunarsveitafólk er 15%). Uppboð verður á völdum vörum kl. 19:30. Á kynningarkvöldunum verður fyrirkomulag safnpantana björgunarsveita einnig kynnt. 

Afsláttardagar hjá Everest

Dagana 29. sept.-4. okt. verður verslunin Everst með 20% afslátt af öllum útivistarvörum fyrir meðlimi Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Einnig verður 30-70% afsláttur af Mammut og OR fatnaði og 30% afsláttur af Mammut alstífum gönguskóm. Einnig er félögum boðið að panta gönguskíði fyrir veturinn með 30% pakkaafslætti. Pantanir þurfa að berast fyrir 20. sept. nk.

Frekari uppl. hjá Steina, steini@everest.is.

Afsláttarkvöld Útilífs

Kynningarkvöld í Glæsibæ, miðvikudagskvöldið 1. október kl. 17:00-21:00. Á kynningarkvöldinu býður Útilíf 25% afslátt af öllum fjalla og útivistarbúnaði. Einnig verða sértilboð og verða þau sérmerkt, ekki er afsláttur af  GPS tækjum.

Athugið að félagar Slysavarnafélagsins Landsbjargar úti á landi geta keypt útivistarvörur með 25% afslætti í póstkröfu, fimmtudaginn 2. október kl.10:00 – 18:00  í Glæsibæ, s. 5451510.

Kynningar og afsláttarkvöld hjá Eins og fætur toga

Kynning og afsláttarkvöld þann 1. október kl. 20:00 í Bæjarlind 4, Kópavogi. Úrval af skóm og sokkum sem henta í göngur og hlaup og boðinn 15% afsláttur af ýmsum vörum. Einnig afsláttur af göngugreiningu, eða 40%.

Björgunarsveitakvöld í 66°N

Í verslun 66°N í Skipagötu á Akureyri fimmtudaginn 2. október nk. Kynning verður á lagskiptum klæðnaði og hvernig honum er raðað saman miðað við aðstæður. Sértilboð verða ásamt öðrum afslætti. Nánari tímasetning auglýst síðar.

 

Eftir Stefna Hugbúnaðarhús 2. janúar 2026
The body content of your post goes here. To edit this text, click on it and delete this default text and start typing your own or paste your own from a different source.
Eftir Sunna Axelsdóttir 6. júlí 2025
Góðan daginn, þetta er flugstjórinn sem talar.
24. maí 2024
Aðalfundur var haldinn að Ytra-Gili þann 20. maí sl. og ný stjórn kosin.
26. apríl 2024
Aðalfundur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar 2024 verður haldinn þann 20. maí kl. 20:00.
20. september 2023
Fyrsti hittingur unglingadeildarinnar var haldinn þriðjudagskvöldið 19. september þar sem var farið í kassaklifur og farið stuttlega yfir flutning í börum.
5. september 2023
Nú er komið að fyrsta almenna fundi vetrarins sem verður haldinn sunnudaginn 10. september nk. í Dalborg kl. 20:30.
14. maí 2023
Björgunarleikar og Landsþing SL var haldið á Akureyri um helgina og landaði lið Dalbjargar í Björgunarleikunum, "Made in Sveitin", 3. sæti af 16 liðum!
5. maí 2023
Aðalfundur Dalbjargar var haldin sunnudagskvöldið 30. apríl á Ytra-Gili hjá þeim eðalhjónum Sigurgeir og Bylgju.Á fundinum var farið yfir venjuleg aðalfundarstörf, s.s. skýrslu stjórnar, skoðun reikninga, framboð til stjórnar, fullgilda félaga frá síðasta aðalfundi og nýliða ásamt fleiru. Sigurgeir Hreinsson var fundarstjóri og Bjarney Guðbjörnsdóttir fundarritari.Kosið var um 3 aðila í stjórn og komu 3 framboð þannig það má segja að þeir aðilar hafi verið sjálfkjörnir.Eftirfarandi aðilar gáfu kost á sér til stjórnarsetu:Elmar SigurgeirssonHreiðar Fannar VíðissonVíðir Sveinn ÁgústssonEinnig var kosið til gjaldkera og gaf Jóhannes Jakobsson kost á sér, en hann hefur sinnt gjaldkerastarfinu í nokkurn tíma. Ekki bárust fleiri framboð svo Jóhannes var kosinn gjaldkeri Dalbjargar.Í vara stjórn eru þá eftirfarandi aðilar:Bjarki Búi ÓmarssonGyða Sjöfn Njálsdóttir
2. maí 2022
Aðalfundur Dalbjargar var haldin sunnudagskvöldið 1. maí kl. 20 á Brúnir Horse.Á fundinum var farið yfir venjuleg aðalfundarstörf, s.s. skýrslu stjórnar, skoðun reikninga, framboð til stjórnar, fullgilda félaga frá síðasta aðalfundi og nýliða ásamt fleiru. Ragnar Jónsson var fundarstjóri og Bjarney Guðbjörnsdóttir fundarritari.Kosið var um 4 aðila í stjórn og komu 4 framboð þannig það má segja að þeir aðilar hafi verið sjálfkjörnir.Eftirfarandi aðilar gáfu kost á sér stjórnarsetu:Kristján Hermann TryggvasonVíðir Sveinn ÁgústssonHreiðar Fannar VíðissonElmar Sigurgeirsson Og Kristján bauð sig fram til formanns, en hann hefur setið áður sem formaður óskum við honum til hamingju með þann titil.Gyða Sjöfn Njálsdóttir fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér aftur til formennsku, þökkum við henni fyrir vel unnin störf síðastliðin 2 ár. En hún segir þó ekki skilið við starfið og gaf kost á sér til varamanns.Í vara stjórn eru þá eftirfarandi aðilar:Gyða Sjöfn NjálsdóttirBjarki Búi Ómarsson
14. apríl 2022
Föstudaginn langa, þann 15. apríl 2022 ætlar Hjálparsveitin Dalbjörg að bjóða gestum að koma í heimsókn. Eins og undanfarin ár efnum við til göngu frá húsi okkar Dalborg. Gengið verður eftir útivistastígnum fína. Ýmsar vegalengdir eru í boði, frá 2,5 km til 12 km., svo að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Að göngu lokinni bjóðum við uppá stórglæsilegt vöfflukaffi.Það verður opið hús, þar sem gestir geta skoðað og fræðst um starf sveitarinnar. Gangan hefst stundvíslega kl. 10:00. Þátttökugjald í gönguna eru 1.500 kr. fyrir 13 ára og eldri og 500 kr. fyrir 6-12 ára og innifalið í því er vöfflur og drykkir að lokinni göngu. Einnig er hægt að leggja frjáls framlög inn á reikning okkar, 0302-26-012482 og kt. 530585-0349.Við hvetjum auðvitað sem flesta til að mæta, ganga, skokka eða hjóla og styðja við bakið á Dalbjargarfélögum. Hlökkum til að sjá ykkur!
Fleiri færslur