Hálendisferð sleðaflokks.

4. mars 2008

Um síðustu helgi fór sleðaflokkur sveitarinnar í ferð upp á hálendið. Farið var á fjórum sleðum, Dalbjargarsleðunum tveimur, Smári Sig á sínum sleða og síðan fékk Pétur nýjan Artic Cat M8 sleða lánaðan hjá Tryggva Aðalbjörns. Hópurinn lagði af stað á föstudagskvöldið og farið var upp Vatnahjallann, suður í Laugafell og gist þar. Á laugardeginum var tankað og haldið af stað suður í Nýjadal.  Þar var veðrið leiðinlegt, hvasst og ofankoma. Við héldum þess vegna vestur yfir Kvíslaveituveg yfir Þjórsárver og í Nautöldu þar sem við mokuðum okkur inn og fengum okkur hádegissnarl. Í Nautöldu fengum við heimsókn eða 25 konur sem voru í Kvennaferð 4x4. Þaðan fórum við síðan áfram vestur í gegnum Setur og í Kerlingafjöll þar sem við heilsuðum upp á sleðamenn LÍV. Síðan renndum við norður Kjöl beinustu leið í Hveravelli í góðu veðri og skyggni. Á Hveravöllum var allt stútfullt af jeppa- og sleðamönnum og þar sem enn var bjart var ákveðið að halda norður fyrir jökul í Laugafell. Það var seinfarið og mjög snjólétt austan við Ingólfsskála, Jökulsáin og Hnjúkahvísl opnar og erfitt að þræða framhjá melum í myrkrinu. Í Laugafell komu við aftur um tíuleytið og var frábært að komast í heitan skálann og borða. Fljótlega fór að draga af mannskapnum eftir akstur dagsins og hreinlega slökknaði á tveimur félögunum eftir matinn. Sunnudagsmorguninn var tekinn rólega og fóru þeir hörðustu út í kófið og hentu sér í laugina á adamsklæðum. Blindað var á heimleiðinni en góð æfing fyrir hópinn þegar við renndum noður í Bergland og niður Hafrárdalinn. Eknir voru rúmlega 300 km við misgóðar aðstæður, ekkert tjón og hópurinn mjög ánægður með æfinguna.


Síðan fengum við þessa flottu heimsókn í Nautöldu.

Austan við Háöldu á sprengisandi.

Eftir Stefna Hugbúnaðarhús 2. janúar 2026
The body content of your post goes here. To edit this text, click on it and delete this default text and start typing your own or paste your own from a different source.
Eftir Sunna Axelsdóttir 6. júlí 2025
Góðan daginn, þetta er flugstjórinn sem talar.
24. maí 2024
Aðalfundur var haldinn að Ytra-Gili þann 20. maí sl. og ný stjórn kosin.
26. apríl 2024
Aðalfundur Hjálparsveitarinnar Dalbjargar 2024 verður haldinn þann 20. maí kl. 20:00.
20. september 2023
Fyrsti hittingur unglingadeildarinnar var haldinn þriðjudagskvöldið 19. september þar sem var farið í kassaklifur og farið stuttlega yfir flutning í börum.
5. september 2023
Nú er komið að fyrsta almenna fundi vetrarins sem verður haldinn sunnudaginn 10. september nk. í Dalborg kl. 20:30.
14. maí 2023
Björgunarleikar og Landsþing SL var haldið á Akureyri um helgina og landaði lið Dalbjargar í Björgunarleikunum, "Made in Sveitin", 3. sæti af 16 liðum!
5. maí 2023
Aðalfundur Dalbjargar var haldin sunnudagskvöldið 30. apríl á Ytra-Gili hjá þeim eðalhjónum Sigurgeir og Bylgju.Á fundinum var farið yfir venjuleg aðalfundarstörf, s.s. skýrslu stjórnar, skoðun reikninga, framboð til stjórnar, fullgilda félaga frá síðasta aðalfundi og nýliða ásamt fleiru. Sigurgeir Hreinsson var fundarstjóri og Bjarney Guðbjörnsdóttir fundarritari.Kosið var um 3 aðila í stjórn og komu 3 framboð þannig það má segja að þeir aðilar hafi verið sjálfkjörnir.Eftirfarandi aðilar gáfu kost á sér til stjórnarsetu:Elmar SigurgeirssonHreiðar Fannar VíðissonVíðir Sveinn ÁgústssonEinnig var kosið til gjaldkera og gaf Jóhannes Jakobsson kost á sér, en hann hefur sinnt gjaldkerastarfinu í nokkurn tíma. Ekki bárust fleiri framboð svo Jóhannes var kosinn gjaldkeri Dalbjargar.Í vara stjórn eru þá eftirfarandi aðilar:Bjarki Búi ÓmarssonGyða Sjöfn Njálsdóttir
2. maí 2022
Aðalfundur Dalbjargar var haldin sunnudagskvöldið 1. maí kl. 20 á Brúnir Horse.Á fundinum var farið yfir venjuleg aðalfundarstörf, s.s. skýrslu stjórnar, skoðun reikninga, framboð til stjórnar, fullgilda félaga frá síðasta aðalfundi og nýliða ásamt fleiru. Ragnar Jónsson var fundarstjóri og Bjarney Guðbjörnsdóttir fundarritari.Kosið var um 4 aðila í stjórn og komu 4 framboð þannig það má segja að þeir aðilar hafi verið sjálfkjörnir.Eftirfarandi aðilar gáfu kost á sér stjórnarsetu:Kristján Hermann TryggvasonVíðir Sveinn ÁgústssonHreiðar Fannar VíðissonElmar Sigurgeirsson Og Kristján bauð sig fram til formanns, en hann hefur setið áður sem formaður óskum við honum til hamingju með þann titil.Gyða Sjöfn Njálsdóttir fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér aftur til formennsku, þökkum við henni fyrir vel unnin störf síðastliðin 2 ár. En hún segir þó ekki skilið við starfið og gaf kost á sér til varamanns.Í vara stjórn eru þá eftirfarandi aðilar:Gyða Sjöfn NjálsdóttirBjarki Búi Ómarsson
14. apríl 2022
Föstudaginn langa, þann 15. apríl 2022 ætlar Hjálparsveitin Dalbjörg að bjóða gestum að koma í heimsókn. Eins og undanfarin ár efnum við til göngu frá húsi okkar Dalborg. Gengið verður eftir útivistastígnum fína. Ýmsar vegalengdir eru í boði, frá 2,5 km til 12 km., svo að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Að göngu lokinni bjóðum við uppá stórglæsilegt vöfflukaffi.Það verður opið hús, þar sem gestir geta skoðað og fræðst um starf sveitarinnar. Gangan hefst stundvíslega kl. 10:00. Þátttökugjald í gönguna eru 1.500 kr. fyrir 13 ára og eldri og 500 kr. fyrir 6-12 ára og innifalið í því er vöfflur og drykkir að lokinni göngu. Einnig er hægt að leggja frjáls framlög inn á reikning okkar, 0302-26-012482 og kt. 530585-0349.Við hvetjum auðvitað sem flesta til að mæta, ganga, skokka eða hjóla og styðja við bakið á Dalbjargarfélögum. Hlökkum til að sjá ykkur!
Fleiri færslur