Allt klárt fyrir Handverkshátíð
Undanfarna daga og vikur hefur verið mikið að gera hjá okkur við að undirbúa Handverkshátíð og í gær var loka dagur í
undirbúningi þegar að tjöldin komu norður. Voru 14 manns frá Dalbjörgu meira og minna í allan gærdag á Hrafnagili að setja upp tjöld
og útisvæðið.
Í dag klukkan 11:30 mun Gísli Einarsson fréttamaður setja sýninguna og fer þá allt á fullt á sýningarsvæðinu. Við
verðum með mannskap alla dagana á sýningunni og búið að manna þetta allt en við verðum með sjúkragæslu, umsjón með
brunaslöngubolta, grill og umsjón með kvöldvöku auk annara umsjónarverka þar sem að Snorri og Raggi eru á fullu.
Þeir sem hafa komið að sýningunni á einn eða annan hátt frá frítt á sýninguna, talið við Ragga og fáið
armbönd.
Vil síðan minna ykkur á að ALLIR þurfa að mæta um kl 18 á mánudag til að taka niður sýninguna. það er mjög
mikilvægt.
Kveðja Pétur








