Æfing á næstunni
10. nóvember 2008
ATH. Æfingi á Þriðjudagskvöld 18 nóv. kl 19.00! Elmar og Pétur hafa tekið að sér að skipuleggja stóra æfingu fyrir okkur Dalbjargarmenn. Hún verður mjög raunveruleg og í líkingu við æfinguna sem við vorum með í fyrra þótt aðaláherslan verði ekki skyndihjálp eins og þá. Æfingin verður í næstu viku á þriðjudagskvöldið. Munið hitting í Bangsabúð á sunnudagskvöldið kl 20. Upprifjun í skyndihjálp og skipulag á vettvangi. Markmiðið með æfingunni er að allur hópurinn æfi sig saman til að gera okkur markvissari og betri í okkar starfi. Þetta er æfing fyrir alla meðlimi Dalbjargar og er skyldumæting fyrir alla. Æfingin sjálf byrjar kl 19:00 og verða menn að verða mættir fyrir þann tíma í Bangsabúð. Reiknað er með að við séum komin aftur í hús milli kl. 21-22 þá verður farið yfir æfinguna og henni lokið kl. 22:30. Nú er gott að menn noti tímann þangað til í að rifja upp þríhyrningana þrjá í skyndihjálp, rifja upp hvaða búnaður er í bílunum, finna búnaðinn sinn og yfirfara hann. Hvað þarf góð björgunarsveit að geta gert? Hún þarf að hafa búnað til að koma sér á staðinn. Við þurfum sjálf að hafa þekkingu og getu til að nota tækin og þekkja umhverfið þar sem við ferðumst. Þegar við erum á staðnum þurfum við að getað leystviðkomandi verkefni og þá er skyndihjálpin númer eitt. Auk þess þurfa skipulagsatriði eins og leitartækni, snjóflóðaleit, sigbjörgun og fleira að vera á hreinu. Til þess að geta leist verkefnið þurfum við góðan búnað í skyndihjálp auk annars búnaðar. Á meðan við gerum þetta allt þurfum við að vinna skipulega og skila mikilvægum upplýsingum frá okkur í gegnum fjarskipti. Dalbjörg stendur mjög vel með tæki og við eigum mjög góðan skyndihjálparbúnað. Við erum með margt fólk sem kann að nota tækin og þekkir til á svæðinu. Við höfum annan lágmarks björgunarbúnað t.d. sigbúnað. Svo er það skyndihjálparkunnátta og regluleg endurmenntun hjá mannskapnum sem er mjög mikilvæg fyrir aðra þætti starfsins. Þannig að núna þurfum við að æfa okkur sem heild og fá betra skipulag á okkur og fá sjálfstraustið upp úr öllu valdi. Við vonumst til að sjá ykkur sem flest og ekki reyna að hunsa þessa æfingu því þið munið sjálf sjá eftir því, þetta verður svo gaman :) Þið sem voruð á æfinguni í fyrra munið hvað það skildi eftir fyrir ykkur og núna höldum við áfram. Kveðja Pétur R.


Aðalfundur Dalbjargar var haldin sunnudagskvöldið 30. apríl á Ytra-Gili hjá þeim eðalhjónum Sigurgeir og Bylgju.Á fundinum var farið yfir venjuleg aðalfundarstörf, s.s. skýrslu stjórnar, skoðun reikninga, framboð til stjórnar, fullgilda félaga frá síðasta aðalfundi og nýliða ásamt fleiru. Sigurgeir Hreinsson var fundarstjóri og Bjarney Guðbjörnsdóttir fundarritari.Kosið var um 3 aðila í stjórn og komu 3 framboð þannig það má segja að þeir aðilar hafi verið sjálfkjörnir.Eftirfarandi aðilar gáfu kost á sér til stjórnarsetu:Elmar SigurgeirssonHreiðar Fannar VíðissonVíðir Sveinn ÁgústssonEinnig var kosið til gjaldkera og gaf Jóhannes Jakobsson kost á sér, en hann hefur sinnt gjaldkerastarfinu í nokkurn tíma. Ekki bárust fleiri framboð svo Jóhannes var kosinn gjaldkeri Dalbjargar.Í vara stjórn eru þá eftirfarandi aðilar:Bjarki Búi ÓmarssonGyða Sjöfn Njálsdóttir

Aðalfundur Dalbjargar var haldin sunnudagskvöldið 1. maí kl. 20 á Brúnir Horse.Á fundinum var farið yfir venjuleg aðalfundarstörf, s.s. skýrslu stjórnar, skoðun reikninga, framboð til stjórnar, fullgilda félaga frá síðasta aðalfundi og nýliða ásamt fleiru. Ragnar Jónsson var fundarstjóri og Bjarney Guðbjörnsdóttir fundarritari.Kosið var um 4 aðila í stjórn og komu 4 framboð þannig það má segja að þeir aðilar hafi verið sjálfkjörnir.Eftirfarandi aðilar gáfu kost á sér stjórnarsetu:Kristján Hermann TryggvasonVíðir Sveinn ÁgústssonHreiðar Fannar VíðissonElmar Sigurgeirsson Og Kristján bauð sig fram til formanns, en hann hefur setið áður sem formaður óskum við honum til hamingju með þann titil.Gyða Sjöfn Njálsdóttir fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér aftur til formennsku, þökkum við henni fyrir vel unnin störf síðastliðin 2 ár. En hún segir þó ekki skilið við starfið og gaf kost á sér til varamanns.Í vara stjórn eru þá eftirfarandi aðilar:Gyða Sjöfn NjálsdóttirBjarki Búi Ómarsson

Föstudaginn langa, þann 15. apríl 2022 ætlar Hjálparsveitin Dalbjörg að bjóða gestum að koma í heimsókn. Eins og undanfarin ár efnum við til göngu frá húsi okkar Dalborg. Gengið verður eftir útivistastígnum fína. Ýmsar vegalengdir eru í boði, frá 2,5 km til 12 km., svo að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Að göngu lokinni bjóðum við uppá stórglæsilegt vöfflukaffi.Það verður opið hús, þar sem gestir geta skoðað og fræðst um starf sveitarinnar. Gangan hefst stundvíslega kl. 10:00. Þátttökugjald í gönguna eru 1.500 kr. fyrir 13 ára og eldri og 500 kr. fyrir 6-12 ára og innifalið í því er vöfflur og drykkir að lokinni göngu. Einnig er hægt að leggja frjáls framlög inn á reikning okkar, 0302-26-012482 og kt. 530585-0349.Við hvetjum auðvitað sem flesta til að mæta, ganga, skokka eða hjóla og styðja við bakið á Dalbjargarfélögum. Hlökkum til að sjá ykkur!




