Hjálparsveitin Dalbjörg

Hjálparsveitin Dalbjörg, Eyjafjarðarsveit

3

Fréttir

Unglingadeildin að hefja störf

Þá er starf unglingadeildarinnar Bangsa að hefjast en er að með breyttu sniði frá því sem var. Nú er unglingadeildin aðeins keyrð á vorönn og fram á sumar og er hún ætluð krökkum frá tíundabekk til 18 ára aldurs . Er hugsunin með því að hafa starfið markvissara og skilar sér betur til þeirra sem taka þátt.
Guðlaug Sigríður verður yfirumsjónarmaður og Helga umsjónarmaður en margir aðrir munu hjálpa til. Hugsunin er að þær tvær muni sjá um að halda utan um dagskrána sem er komin og sjá til þess að fá mannskap til að hjálpa til við kennslu eða verkefni. Við hin hinsvegar tökum vel í það þegar þær leita til okkar og er hugmyndin að aðeins verði leitað einu sinni til hvers og eins með að hjálpa til á hverri önn.
Starf deildarinnar verður kynnt í Hrafnagilsskóla á föstudag og þá geta krakkar skráð sig í hana sem ekki voru skráð í hana fyrir. Formleg dagskrá heldur síðan áfram í næstu viku með kassaklifri í íþróttahúsinu.

Lesa meira

Unglingadeildarferð

Núna um helgina verður farin ferð með unglingadeildina upp í Réttartorfu. Það verður farið á bílum Dalbjargar frá Leirunesti kl. 10:00 á laugardagsmorgun og gist í skála Eyjafjarðardeildar 4x4 klúbbsins í Réttartorfu um nóttina. Lesa meira

Klifur hjá unglingadeild


Sælir krakkar

Nú er búið að ákveða hvenær við förum í klifur í klifurveggnum hjá Súlum, en það verður næsta mánudag, þann 27. apríl. Mæting er í Súluhúsinu (rétt hjá Hagkaup) kl. 20:30.
Þetta verður auðvitað rosa gaman og við hvetjum alla þá sem einhvern áhuga hafa á klifri, sigi og svoleiðis hlutum að mæta til að prófa.
Frekari upplýsingar eru hjá Marsibil eða Sunnu.

Sjáumst hress!

Skyndihjálp hjá unglingadeild

Frábær mæting

Þann 9 febrúar sl. héldum við skyndihjálparnámskeið fyrir unglingadeildina. Einnig mættu félagar úr unglingadeildinni hjá Týr á Svalbarðseyri. Alls voru 33 krakkar mættir í Bangsabúð og er það frábær mæting.

Lesa meira

Námskeið á mánudaginn


Á mánudaginn verður námskeið í fyrstu hjálp fyrir unglingadeildina. Lesa meira

Unglingadeildin


Unglingadeildin hefur margt að gera um þessar mundir og þátttakan er góð. Um miðjan janúar var haldinn skemmtidagur í Bangsabúð sem heppnaðist mjög vel. Lesa meira

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning