Smellið hér til að skoða námsgrunn ykkar hjá Landsbjörg.
- Notendanafn = kennitala (Jónasar)
- Lykilorð = Jóna.1234
Kröfur og skilyrði:
Aðili þarf að vera orðinn 18 ára og vera fullgildur félagi í Hjálparsveitinni Dalbjörg til að vera á heildar- og/eða
tækjaútkallslista.
Aðili þarf að eiga og/eða hafa góðan aðgang að viðeigandi búnaði til að teljast útkallshæfur.
Lágmarksbúnaður:
- Góður fatnaður
-
- Landsbjargargallinn (skilyrði)
- Hlý nærföt
- Flíspeysa/buxur eða sambærilegt
- Gönguskór
- Vasaljós
- Höfuðljós
- Hjálmur
- Bakpoki
- Skyndihjálparbúnaður
Námskeið:
Aðili þarf að hafa lokið vissum námskeiðum innan Björgunarmanns 1 til að mega vera á heildarútkallslista Dalbjargar.
Lágmarksnámskeið fyrir heildarútkall:
Fyrsta hjálp 1
Fyrsta hjálp 2 (B2, en skyldunámskeið)
Ferðamennska og rötun
Björgunarmaður í aðgerðum
Auk þessa er miðað við að þeir sem eru á tækjaútkallslista séu búnir með námskeiðin í Björgunarmanni 1. Þeir sem eiga eftir námskeið skulu leggja allt kapp á að ljúka þeim og afla sér framhaldsmenntunar.
Björgunarmaður 1:
Fyrsta hjálp 1
Fyrsta hjálp 2 (B2, en skyldunámskeið)
Fjarskipti 1
Fjallamennska 1
Snjóflóðaleit
Leitartækni
Ferðamennska og rötun
Björgunarmaður í aðgerðum
Slöngubátur
Athuga skal að það fer alltaf eftir eðli útkallsins hvaða kröfur eru gerðar til björgunarmanna. Ef stjórnandi aðgerðar telur aðila ekki vera hæfan til útkallsins vegna skorts á kunnáttu, búnaði eða öðru, getur stjórnandi vísað aðilanum frá eða falið honum annað verkefni.
Við minnum á að í Siðareglum Landsbjargar, sem við lútum öll, segir að:
“Félögum ber að hlýða stjórnendum aðgerða eða æfinga og fylgja því skipulagi sem sett hefur verið upp af stjórnendum.”






