Hjálparsveitin Dalbjörg

Hjálparsveitin Dalbjörg, Eyjafjarðarsveit

3

Verklag við útköll



Við útkall fá menn sent SMS frá “112” með boðun eftir alvarleika útkalls, hvert verkefnið er og upplýsingar um hvar það er eða hvert menn eiga að mæta.

  • F1-rauður > Mannslíf er í húfi og tími skiptir öllu máli.  Slysstaður er þekktur.
  • F2-gulur   > Mínútur skipta ekki höfuð máli eða slysstaður ekki þekktur.
  • F3-grænn > Útköll þar sem tíminn skiptir ekki höfuð máli, boðað með fyrirvara.

 

• Ef að nafn fylgir fyrir aftan þá eiga menn að senda SMS á viðkomandi og láta vita “kemst” eða “kemst ekki”.
• Ef að ekkert nafn er fyrir aftan skilaboðin á að hringja í eftirtalda menn til að láta vita að menn séu klárir, í þessari röð.


1. Pétur R Tryggvason, formaður
2. Helgi Schiöth
3. Eiður Jónsson, varaformaður
4. Ingvar Þ Ingólfsson, svæðisstjórnarmaður

Ef ekki næst í efsta mann á að hringja í næsta og síðan koll af kolli. Sá sem sér um útkallið verður stjórnandi þess.

Þessir menn, stjórnendurnir, eru okkar bakland og fyrstu stjórnendur útkalls. Þeirra verkefni eru mjög mikilvæg enda byggist góð aðgerð á skipulagi og fumlausum vinnubrögðum. Einn þessara manna gæti boðað útkallið og skipulagt fyrstu skref en síðan annar tekið við og séð um að vera tengiliðurinn eða svæðisstjórn.

Verkefni stjórnanda er að:

  • Boða út sveitina og skipuleggja fyrstu skref.
  • Afla upplýsinga og koma þeim til útkallsliðs.
  • Sjá um að sett sé inn á Aðgerðargrunn.
  • Tryggir að það sé tengiliður fyrir útkallslið heima í byggð.

Ýmis skjöl af heimasíðu Landsbjargar þessu tengt má nálgast hér. Þau eru:

  • Gátlisti SÁBF fyrir leitir
  • Handbók í aðgerðastjórnun
  • Handbók í leitarstjórnun
  • Eyðublöð týnd persóna v1.3
  • Hópablað
  • Vísbendingablað
  • Upplýsingagjöf og upplýsingataka leitarhópa
  • Líkur á fundi
  • Leiðbeiningar um notkun gagnagrunns um bjargir.

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning