Hjálparsveitin Dalbjörg

Hjálparsveitin Dalbjörg, Eyjafjarðarsveit

1

Lög Dalbjargar

Lög fyrir Hjálparsveitina Dalbjörg

Samþykkt á aðalfundi Dalbjargar 14. apríl 2011


1. grein
 
Félagið heitir Hjálparsveitin Dalbjörg, skammstafað HSD.  Heimili og varnarþing er Eyjafjarðarsveit.  Sveitin er aðili að Slysvarnafélaginu Landsbjörg og hlýtur almennum lögum og siðareglum þess.

2. grein

Hlutverk félagsins er að reka öflugt björgunar- og slysavarnastarf.


3. grein

Félagar

Allir þeir sem eru á 17. ári geta hafið störf sem félagar í Hjálparsveitinni Dalbjörg. Eru félagar teknir inn sem nýliðar á næsta aðalfundi.

Félagar þurfa að ljúka þjálfun sem stjórn hverju sinni ákveður og einnig í samræmi við kröfur S.L.
Þegar félagi er orðinn 18 ára eða eldri og hefur lokið þjálfun getur hann orðið fullgildur félagi og farið á útkallslista eftir að hafa kynnt sér siðareglur S.L. og undirritað staðfestingu á því.
 
4. grein

Tryggingar

Stjórn sveitarinnar skal sjá um tryggingar fyrir eigur sveitarinnar. Einnig skal stjórn sjá til þess að félagar séu skráðir eins fljótt og auðið er til Slysavarnarfélagsins Landsbjargar þannig að þeir séu tryggðir í öllu starfi.

5. grein

Almennir fundir

Yfir helstu starfsmánuði (september – júní) skulu almennir sveitarfundir sem og stjórnarfundir haldnir minnst mánaðarlega.  Þeir skulu boðaðir á fullnægjandi hátt og fundargerðir skulu ritaðar.


6. grein

Aðalfundur

Aðalfund Hjálparsveitarinnar Dalbjargar skal halda eigi síðar en í apríl ár hvert. Hann hefur æðsta vald í málefnum sveitarinnar og tekur þær ákvarðanir um starfsemi hennar sem þörf er á.
Aðalfundur er löglegur ef félagar sveitarinnar eru boðaðir með tveggja vikna fyrirvara og að lágmarki 20 fullgildra félaga mæti á fundinn. Ef sá fjöldi næst ekki skal auglýst aftur og þá telst fundur löglegur óháð fjölda.
Verkefni aðalfundar eru:

1. Formaður setur fundinn og skipar fundarstjóra og ritara.

2. Skýrsla stjórnar.

3. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram.

4. Inntaka nýliða og fullgildra félaga.

5. Breytingar á lögum.

6. Kjör stjórnar og tveggja endurskoðenda.

7. Önnur mál.
 
7. Grein

Stjórn

Stjórn Hjálparsveitarinnar Dalbjargar skal skipuð 5 mönnum sem kosnir eru á aðalfundi. Kosið er um formann og gjaldkera auk varaformanns, ritara, og meðstjórnanda.

Á hverju ári er kosið um fjóra menn í stjórn.
Varaformaður, ritari og meðstjórnandi eru kosnir á hverju ári.
Kosið er á víxl um formann og gjaldkera þar sem þeirra kjörtímabil eru tvö ár. 
Þannig er fyrsta árið kosið um formann og þrjá stjórnarmenn, annað árið um gjaldkera og þrjá stjórnarmenn og síðan koll af kolli.
Stjórnin skiptir með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund. Skal stjórn koma saman eigi síðar en mánuði eftir aðalfund.

Tveir efstu menn í kosningu til stjórnar sem ekki ná kjöri í aðalstjórn eru sjálfkrafa varamenn í stjórn. Ef varamaður gengur inn í stjórn gegnir hann þeirri stöðu út sama kjörtímabil.

•Fundarstjóri tilnefnir þrjá menn til að halda utan um kosningu.

•Falli atkvæði jafnt skal kosið aftur á milli þeirra sem hafa hlotið jöfn atkvæði.

•Kjörseðill er því aðeins gildur að kosnir séu jafnmargir og kjósa skal hverju sinni.

•Kosning skal ávallt vera skrifleg.

Félagi þarf að hafa starfað í sveitinni í eitt ár og vera átján ára til að hafa kosningarrétt og geta boðið sig fram til stjórnar Dalbjargar.
 
8. grein

Almennt

Stjórn sveitarinnar skal leitast við að fela félögum hennar verkefni eftir áhugasviði og hæfni hvers og eins.

Stjórn skal sjá til þess að félagar hafi kost á því að sækja þau námskeið sem krafist er í þjálfun hans.
 
9. grein

Leggist sveitin niður skulu eigur hennar renna til sveitarfélagsins til varðveislu eða ráðstöfunar í samráði við stjórn Hjálparsveitarinnar Dalbjargar og lög Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

 

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning