66° Norður í Glerárgötu 32 á Akureyri er með gott úrval af fatnaði sem þeir framleiða fyrir Landsbjörg (sjá hér). Þar getum við farið og mátað fötin og látið merka þau með
merkingu Dalbjagar og nafni viðkomandi.
Það sem þið gerið er að fara þangað og máta td. peysu og látið þau síðan vita hvaða stærð og nafn á
að koma á peysuna. Þau athuga síðan hvort þið séuð skráð í Dalbjörg á lista sem þau hafa og síðan
merkja þau peysuna eftir okkar forskrift. Þetta tekur 7-10 daga og þá geti þið sótt peysuna ykkar. Merkt peysa ætti að kosta um 9840. kr en
þið takið nótu fyrir þessu þar sem að Hjálparsveitin greiðir niður fatnað um 30% fyrir þá sem starfa með sveitinni.
Nótan þarf að komast sem fyrst til gjaldkera merkt ykkur og reikn uppl.

Þetta er peysan sem við notum (kvennasnið) hún er merkt með nafni viðkomndi á hægri barmi, "http://www.dalbjorg.is/" á baki og síðan "Dalbjörg Eyjafjarðarsveit" á vinstri handlegg.
Björgunarsveitargallar fást einnig niður í 66° Norður en þar eru breytingar í nánd þar sem að
66°
ætlar að koma með tvo nýja galla eftir áramót. Það eru en í boði tvær gerðir þar sem detta síðan út.
Þannig að kanski réttara að bíða með galla kaup þar til 2012. Gore-tex gallinn verður áfram frá Tiega og fæst hann hjá
samtökunum.

Hjálparsveitargallar fást í 66°
Bolir merktir sveitinni eru til fram í húsi og kosta þeir 1500 krónur, hafið með ykkur pening fyrir bolunum handa
gjalkera.

Buff fæst hjá 66°

Kosta 1512.- kr
Flýtilyklar

Fatnaður Dalbjargar
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni





