Hjálparsveitin Dalbjörg

Hjálparsveitin Dalbjörg, Eyjafjarðarsveit

3

Fréttir

Fjölskyldu útilega Dalbjargar í Ásbyrgi

Nú er stefnan tekin í Vesturdal við Ásbyrgi og er planið að menn hittist þar á föstudagskvöldi. Á föstudagskvöldinu ætlum við að grilla, fara í leiki og fleira skemmtilegt. Svo á laugardeginum er stefnt að því að sem flestir fari saman og labbi Hljóðaklettana sem eru í Jökulsárgljúfrum. þetta er létt og skemmtileg ganga sem allir ættu að hafa gaman af. Eftir það verða menn að koma sér saman um hvað eigi að gera því margt er í boði og skoðun manna misjöfn. Það sem í boði er á svæðinu eru t.d. fleiri gönguleiðir í átt að Dettifossi, skoðunarferð um Ásbyrgi og nágrenni, keyra inn að Dettifossi svo eitthvað sé nefnt. Um kvöldið verða grillaðir hamborgarar og pylsur í boði sveitarinnar, en auðvitað er fólki frjálst að koma með sinn eiginn mat. Eftir grillið verður kvöldvaka, þá ætlum við að fara í leiki og svo verður sungið og trallað fram undir morgun ;)
Á sunnudeginum er stefnt á að taka lengri leiðina heim og koma við á Mývatni og koma við í  Dimmuborgum og fyrir þá sem vilja enda útileguna hreinir ætlum við að koma við í Jarðböðunum.

Verð á tjaldsvæðinu er 950 kr fyrirfullorðna, 13- 16 ára borga 500 kr nóttina en börn 12 ára og yngri fá frítt.

Nú er um að gera að tjá sig í athugasemdum hér fyrir neðan hvort/hvenar þið ætlið að koma, með hvað marga með ykkur og hvað ykkur langar að gera.

Kveðja FRÁBÆRA SUMARNEFNDIN - Binni ;)Halli að grilla


Við Eiður stefnum á að komast vonandi. Enda mjög spennandi ferð. Vona að sem flestir mæti allavegana annað kvöldið :)
Okkur Eyda langar að mæta, ætlum að sjá til með heyskap...
Þetta verður ROOSSSALEGT 8D
jei !!
ég stefni á að mætta og gista alla vega eina nótt jafnvel tvær :)
Jú jú ég ætla að mæta og krakkarnir.
Eg stefni a ad maeta ;)
Við stefnum á að mæta bara spurning hvenær við komumst á stað því tengda foreldrar mínir eru í heimsókn og þau fara á laugardaginn.
koma so
það verðu alla vega nó af hamborgurum með í för og slatti af pylsum líka:) komasooo skrá sig við eigum skilið að skemta okkur eftir frábæra vinnu á handverkshátiðinni!!
Góða skemmtun
Kemst ekki, jájá kemur kannski ekki á óvart :P Grenivíkurgleði it is hjá mér um helgina;) verð að tjékka á því hvort björgunarsveitin þar geti skellt saman góðri flugeldasýningu :P Vona samt að þið skemmtið ykkur vel ;)
Hvaða....
Hvernig er með þessa skráningu? Ég var að heyra að stór hluti sumarnefndar ætli ekki að mæta? Vona að það hafi verið einhver misskilningur...
SKILABOÐ FRÁ SUMARNEFND
Þessi útilega hefur verið blásin af sökum dræmrar þátttöku. Við byðjumst velvirðingar á þessari ákvörðun sem var óhjákvæmileg.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning