Sleðadeildin - mánudagur 01.mars 2010 - Pétur Tryggvason - Lestrar 119 -
Athugasemdir (1)

Sleðar Dalbjargar
Sleðadeildin var rétt komin í hús í dag þegar aðstoðarbeiðni kom frá mönnum sem staddir voru í Vatnahjalla inn á
Eyjafjarðardal. Mennirnir, sem eru vatnamælingamenn, voru að reyna að koma sér upp Vatnahjallann á fulllestuðum sleðum með aftaní þotum og
áttu í vandræðum þar sem hjallinn er illfær vegna púðurs.
Skipt var um áhöfn og fóru Tómas og Viðar á björgunarsleðunum til aðstoðar. Það tók fjóra klukkutíma
að hjálpa þeim upp hjallann og upp Hafrárdalinn. Mennirnir héldu síðan áfram för sinni en þeir ætluðu í Laugafell
í kvöld.