Útkall í Reykárhverfi
Almennt - miðvikudagur 28.desember 2011 - Pétur Tryggvason - Lestrar 89 - Athugasemdir (0)

Mikill raki og tjón af hans völdum
Hjálparsveitin Dalbjörg var kölluð út um kl. 18 í kvöld í Reykárhverfi í Eyjafjarðarsveit. Þar hafði orðið
mikið vatnstjón innandyra í íbúðarhúsi þegar að heitt vatn flæddi um öll gólf.
Á annan tug björgunarsveitarmanna vann við að forða búslóð íbúanna úr húsinu út í bíla og flytja
það í annað húsnæði.
Björgunarsveitarmenn ætla að vinna fram á kvöld við að rífa parket af gólfum til að freista þess að þurrka húsnæðið sjálft.

Björgunarsveitarmenn að störfum í kvöld.






