Útkall grænn leit á Fimmvörðuhálsi.
Almennt - fimmtudagur 10.nóvember 2011 - Pétur Tryggvason - Lestrar 133 - Athugasemdir (6)

Mynd af Fimmvörðuhálsi í dag.
Sjö manns frá Dalbjörgu lögðu af stað upp úr hádegi, 5 göngumenn, bílstjóri og svæðisstjórnarmaður. Reiknað er með að þeir tilkynni sig inn til vettvangsstjórnar um 21-22 í kvöld og fái þá úthlutað verkefni. Svæðið sem leitað er á er nú í kringum Sólheimajökul þar sem að bíll og vísbendingar miða að því svæði.






