Hjálparsveitin Dalbjörg

Hjálparsveitin Dalbjörg, Eyjafjarðarsveit

3

Fréttir

Námskeið á mánudaginn

Á mánudaginn verður námskeið í fyrstu hjálp fyrir unglingadeildina. Námskeiðið verður haldið í Bangsabúð. Það hefst stundvíslega kl. 19:30 og lýkur um 21:30-22:00 og Pétur verður leiðbeinandi.
Nokkrir krakkar frá Björgunarsveitinni Tý á Svalbarðseyri ætla líka að koma á námskeiðið, og það verður gott tækifæri fyrir okkur að kynnast hvort öðru.

Þetta námskeið er góður undirbúningur fyrir alvöru námskeið í fyrstu hjálp sem þið takið þegar þið verðið félagar í Hjálparsveitinni, og auðvitað er þetta einnig nauðsynleg almenn þekking.

Við vonumst til að sjá ykkur sem flest á námskeiðinu!

Kveðja umsjónarmennirnir


Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning