Hjálparsveitin Dalbjörg

Hjálparsveitin Dalbjörg, Eyjafjarðarsveit

1

Fréttir

Pönnsur, fundur og samæfing

Frá snjóflóðanámskeiði um helgina.
Það var notalegur fundur sem var haldinn með hitabeltisþema í Bangsabúð í gærkvöldi. Þar voru nett og þægileg mál rædd auk þess sem smá tiltekt var í lok fundar. Vil ég þakka öllum sem mættu fyrir góðan fund. Halli hafði skellt í pönnsur og Gulla mætti með skúffuköku enda afmælisbarn.

Það sem ber hæðst eftir fundinn er samæfing sem verður haldin á Dalvík um aðra helgi 18. feb og þurfa menn að skrá sig sem allra fyrst á hana. Stefnan er að senda hópa í almennt, skyndihjálp og sleða verkefni. Þeir sem geta mætt og tekið þátt í skemmtilegum degi skulu skrá sig núna takk. :)

Almennur fundur á Sunnudag.

Jæja félagar þá er komið að febrúarfundi hjá okkur. Hann verður haldinn í Bangsabúð á sunnudag kl 20:30. Húsið opnar að vanda kl 20 og verður hann bísna nettur og skemmtilegur.. Hef heyrt að einn af okkar góðu félögum eigi afmæli um þetta leiti og trúlegt að við fáum að njóta þess..
Þeir sem eiga skyndihjálparbúnað ættu að huga að því að fylla á þar sem allt er til fremra. Gulla mun eflaust aðstoða við það.

Sjáumst hress..

Snjóflóð 1 og 2

Frá námskeiði 2010 á Víkurskarði
Helgina 27-29 janúar verða námskeiðin snjóflóð 1 og 2 haldin hérna í firðinum. Er það opið öllum björgunarsveitarfólki við Eyjafjörð og verða kennarar héðan meðalannars mun Bubbi kenna á því. Snjóflóð 1 verður kennt á föstudegi og laugardegi, snjóflóð 2 verður síðan að megninu á sunnudeginum. Lesa meira

Æfingaferð á jeppum

Dalbjörg 1 og 2 við Sandbúðir
Það er stefnt á æfingaferð hjá Jeppaflokkum Súlna og Dalbjargar upp Kerhólsöxlina á Laugardag. Öllum félögum er velkomið að skella sér með í þessa ferð en við ætlum að reyna að manna báða jeppana okkar. Tilvalið fyrir yngri meðlimi að kynnast tækjunum okkar.

Aðstoð við Eyvindastaði

Óskað var eftir aðstoð björgunarsveitarinnar um kl 16 í dag við að ná bíl upp úr gilinu við Eyvindarstaði. Var farið á báðum bílum sveitarinnar og gekk vel að spila bílinn sem var stór amerískur pallbíll upp úr gilinu.

Mannbroddar og ísöxi


Við erum búin að fá tilboð í mannbrodda og ísöxi fyrir björgunarsveitina. Félögum á útkallsskrá býðst að kaupa brodda á 9000 kr. og gönguísöxi á 11000 kr. 

Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þetta frábæra verð er bent á að skrá sig hérna svo að við getum farið að ganga frá þessu.
Lesa meira

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning