Hjálparsveitin Dalbjörg

Hjálparsveitin Dalbjörg, Eyjafjarðarsveit

2

Fréttir

Ný stjórn og almennur fundur

Aðalfundur Dalbjargar var haldinn þann 19. apríl í Sólgarði. Á fundinum var Haraldur Þór Óskarsson kosinn formaður og Sunna Axelsdóttir kom inn í stjórn sem ritari.

Á sunnudag verður svo almennur fundur haldinn í Bangsabúð og húsið opnar kl. 20. Umfjöllunarefni verða m.a. handverkshátíðin, sumardagskráin og fleira. Auðvitað verður kaffi og með því á boðstólnum.

Vonumst til að sjá ykkur sem flest!

Kveðja stjórnin.

Aðalfundur!


Minni á Aðalfundinn okkar í kvöld kl 20:30 í Sólgarði. Húsið opnar kl 20:00 frábærar veitingar í boði ;)
Hlökkum til að sjá ykkur ;) 

Páskaganga 2012


Á morgun, föstudaginn langa, verður hin árlega páskaganga gengin frá Bangsabúð. Gangan hefst kl. 10 og verður genginn um 20 km. hringur. Félagar hjálparsveitarinnar munu keyra hringinn með vatn og þeim sem ekki vilja ganga alla leið gefst kostur á að fá far í Bangsabúð. Þátttökugjald er 500 kr. fyrir 15 ára og eldri.

Aðalfundur!

Aðalfundur Dalbjargar verður haldinn í Sólgarði sumardaginn fyrsta 19 apríl nk.
Húsið opnar kl 20:00 og hefst fundurinn 20:30. kaffi og kökur verður að sjálfsögðu á boðstólnum og hvetjum við alla til að mæta.

Stjórnin.

Fundur á sunnudag

Það er fundur á sunnudag.. Já ég veit það er 1 apríl en það er samt fundur.. Húsið opnar kl. 20 og fundur byrjar 20:30..

Dalbjargarferðin

Bangsi í nýjum búningi
Það er góð helgi að baki en um síðustu helgi var farið í "stóru" Dalbjagarferðina. Við lögðum af stað á föstudagskvöld upp Vatnahjalla og haldið í Bergland og gist þar, á laugardeginum var farið norður á Nýjabæjarfjall og margir dalir þræddir og svæðið skoðað vel í blíðunni áður en menn fikruðu sér suður með Austurdalnum inn í Grána. Lesa meira

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning